Vatnsréttindi ríkisins í Þjórsá ekki niðurfallin 26. september 2008 12:22
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið og Landsvirkjun af kröfum landeiganda Skálmholtshrauns við Þjórsá um að viðurkennt yrði með dómi að eignarréttur ríkisins á vatnsréttindum í Þjórsá í landi Skálmsholtshrauns væri niðurfallinn. Dómsmálið tengist áformum Landsvirkjunar um að byggja Urriðafossvirkjun sem er ein þriggja áformaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár. Landeigandi Skálmholtshrauns sleit í fyrra viðræðum við Landsvirkjun um málið og bar við of mörgum óvissuþáttum um framkvæmdina. Ríkið öðlaðist vatnsréttindin á þessu svæði og víðar við Þjórsá með svokölluðumn Títansamningum árið 1952.Höfðaði eigandi landsins mál þar sem krafist var viðurkenningar á því vatnsréttindi íslenska ríkisins að Þjórsá í landi Skálmholtshrauns, sem framseld hefðu verið til Landsvirkjunar, væru niður fallinn. Til vara fór eigandinn viðurkenningar á því að hafa eignast að nýju vatnsréttindi Skálmholtshrauns fyrir hefð og til þrautavara var krafist viðurkenningar á því að vatnsréttindi íslenska ríkisins væru niður fallin fyrir vangeymslu og tómlæti. Að lokum var þrautaþrautvarakrafa eiganda sú að vatnsréttindi ríkisins heimiluðu ekki byggingu Urriðafossvirkjunar með tilheyrandi lónum.Héraðsdómur Reykjavíkur komst hins vegar að því að sýkna bæri ríkið og Landsvirkjun af aðal-, vara- og þrautavarakröfunni og þá var þrautaþrautavarakröfunni vísað frá meðal annars á þeim grundvelli að dómkrafan fæli í sér lögfræðiálit og það væri andstætt lögum um meðferð einkamála.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Fleiri fréttir Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Sjá meira