Erlent

Palin varin gegn illum göldrum

Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember, er varin gegn öllum illum göldrum samkvæmt blessun sem hún hlaut í kirkju sinni fyrir þremur árum.

Á umdeildu myndbandi sem birtist á vefnum YouTube fyrr í vikunni má sjá hvar prestur frá Kenýa biður fyrir henni í messu í hvítasunnukirkju í heimabæ Palin í Alaska. Presturinn biður Jesú Krist að verja Palin gegn alls kyns göldrum vegna framboðs hennar til ríkisstjóra í Alaska.

Talsmaður Repúblíkanaflokksins segir Palin ekki tilheyra Hvítasunnusöfnuðinum þótt hún hafi sótt kirkjuna.

Myndbandið má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×