Erlent

Sest að samningaborðinu í Austur-Kongó

Laurent Nkunda, leiðtogi skæruliða í Austur-Kongó samþykkti í morgun að setjast að samningaborðinu með stjórnaherrum í Kongó og taka þátt í friðarviðræðum. Nkunda átti fund með Obasanjó, forseta Nígeríu sem reynt hefur að miðla málum í blóðugum átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna í austurhluta Kongó.

Á þeim fundi samþykkti Nkunda að taka þátt í friðarviðræðum og sagði að hann og hans liðsmenn myndu virða vopnahlé. Einnig yrði opnað fyrir flutning á neyðargögnum til nauðstaddra en fjölmargir íbúar á svæðinu eru á vergangi vegna átaka síðustu vikna og mánaða.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×