Innlent

Fljúgandi hálka víða um land

Fljúgandi hálka er nú á þjóðvegum víða um land og hafa til að mynda þrír bílar oltið í Árnessýslu það sem af er degi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi veldur frostrigning þessum varasömu akstursskilyrðum.

Tveir menn slösuðust í einni bílveltunni, sem varð við Þjórsárbrú, og fengu báðir höfuðáverka. Annar bíll valt á Skeiðavegi við Brautarholt og þriðji bíllinn við Úthlíð í Biskupstungum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×