Atvinnulausum í Bandaríkjunum fjölgar meira en búist hafði verið við 3. október 2008 14:17 MYND/AP
Atvinnulausum í Bandaríkjunum fjölgaði um 159 þúsund í nýliðnum september samkvæmt tölum sem bandarísk yfirvöld birtu í dag. Það var nokkuð meira en greiningaraðilar höfðu búist við. Frá upphafi árs hefur störfum í Bandaríkjunum fækkað um 750 þúsund og lýsti talsmaður Bandaríkjaforseta yfir vonbrigðum með nýjustu tölur í dag. „Það mun taka nokkurn tíma fyrir efnahagslífið að ná sér eftir húsnæðislánakreppuna, hækkandi orkuverð og lánsfjárþurrðina," sagði Tony Fratto, talsmaður Bandaríkjastjórnar. John McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana, sagði efnahagslífið á rangri leið og að mikilvægt væri að Bandaríkjaþing tækist á við fjármálakreppuna og verði skattgreiðendur fyrir áföllum. Hann væri staðráðinn í að komast að rótum kreppunnar, endurbylta stjórnkerfinu í Washington og taka til eftir græðgiskapítalisma sem íbúðarlánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac hefðu stuðlað að. Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, sagði hins vegar að ekki væri hægt að bjóða bandarísku þjóðinni upp á stefnu McCains sem þýddi áframhald á stefnunni sem hefði rústað miðstéttinni á síðustu átta árum. Hann myndi skapa milljónir starfa með því að fjárfesta í innviðum samfélagsins og endurnýjanlegum orkugjöfum.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira