Erlent

Eiginkona Shinawatra dæmd fyrir skattsvik

Eiginkona fyrrrum forsætisráðherra Taílands, Taksin Shinawatra, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir skattsvik.

Þetta er fyrsta málið af mörgum gegn fjölskyldu Shinawatra sem nú eru rekin fyrir dómstólum í Bangkok. Eiginkonunni, bróður hennar og einkaritara var gefið að sök að hafa reynt að svíkja um hálfan annan milljarð króna undan skattinum.

Bróðirinn fékk einnig þriggja ára dón og ritarinn tvö ár. Shinawatra er einkum þekktur á Vesturlöndum fyrir að vera eigandi Manchester City fótboltaliðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×