Ásaka fyrirrennara XL Leisure um bókhaldssvindl 14. september 2008 18:37
KPMG endurskoðunarfyrirtækið í Bretlandi sakar stjórn Exel Airways, sem síðar varð XL Leisure Group, um bókhaldssvindl til að fegra fjárhagsstöðu fyrirtækisins áður en móðurfélag þess - Avion - var skráð í Kauphöll Íslands. Hafi þetta verið gert vísvitandi er það alvarlegt brot á bókhaldslögum og lögum um skráningu félaga í kauphöllum. Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að KPMP endurskoðunarfyrirtækið hafi sagt skilið við Excel Airways í október 2006, vegna þess að fyrirtækið hafi ekki tekið tillit til ábendinga KPMG um bókhaldsóreiðu, sem hafi verið til þess fallin að fegra fjárhagsstöðu íslenska móðurfélagsins Avion, áður en félagið var skráð í Kauphöll Íslands 20. janúar 2006. Nafni Excel Airways var breytt í XL Leasure Group í nóvember 2006, en það fyrirtæki er nú farið á hausinn með miklum hvelli. Avion, sem er í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, keypti Eimskip í maí 2005 og við það hvarf Avion nafnið og fyrirtækið hefur heitið Eimskip eftir það. En við gjaldþrot XL féll 27 milljarða lán XL á Eimskip, sem Björgólfsfeðgar, fyrrverandi viðskiptafélagar Magnúsar, gengu í ábyrgð fyrir á dögunum. Ásgeir Friðgeirsson talsmaður Landsbankans sem er aðalviðskiptabanki Eimskipa, sagði Stöð 2 á föstudag og bankinn teldi að öll vandræði Eimskipa væru nú komin upp á borðið. Ef það reynist hins vegar rétt að stjórnendur Excel Airways, nú XL flugfélagsins, hafi vísvitandi fegrað bókhald sitt til að gera Avion móðurfélagið verðmeira þegar það var skráð í Kauphöll Íslands, er um mjög alvarlegt brot á bókhaldslögum og lögum um skráningu félaga í kauphöll að ræða. Bókhaldsóreiðan hjá Excel Airways fólst í því samkvæmt samkvæmt heimildum breskra fjölmiðla, að greina ekki frá skuldum félagsins við stóran þjónustuaðila í flugveitingum. Sérfræðingar í lögum og reglum um kauphallarviðskipti sögðu fréttastofu í dag, að ef þarna reyndist vera um vísvitandi bókhaldssvindl að ræða sem hefði veruleg áhrifná verðmat Avion, gætu kaupendur á hlutabréfum í Avion átt skaðbótarétt gegn fyrirtækinu og þar gæti verið um stórar upphæðir að ræða. Það er því ekki víst að ábirgðum Eimskips á þessu óláns flugfélagi sé lokið, sem aftur gæti haft áhrif á Landsbankann og eigendur hans.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira