Vilja að orka úr Þjórsá fari í netþjónabú í heimabyggð 29. apríl 2008 21:47 Meðal þess sem virkja á er Urriðafoss.
Forsvarsmenn fjögurra sveitarfélaga í kringum Þjórsá samþykktu á fundi sínum í dag koma á fót framkvæmdanefnd til þess að vinna að því að orkan úr fyrirhuguðum virkjunum í neðri hluta Þjórsár verði nýtt til atvinnuuppbyggingar í sveitarfélögunum fjórum. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Rangárþing ytra, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur og Flóahreppur. Í fundargerð kemur fram að sjónir manna beinist nú í auknum mæli að uppbyggingu netþjónabúa og annarrar orkufrekrar atvinnuuppbyggingar sem ekki reiði sig á hafsækni. Netþjónabú og önnur umhverfisvæn uppbygging sé vænlegur kostur fyrir svæðið. Á fundinum var farið yfir stöðu mála varðandi virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Landsvirkjun hefur áform um að reisa þar þrjár virkjanir, Holtavirkjun, Hvammsvirkjun og Urriðafossvirkjun. Sveitarstjórnarmenn segja mikilvægt að vinna saman að verkefninu og sýna fram á kosti og möguleika alls svæðisins fyrir netþjónauppbyggingu. Mikilvægt sé að bregðast skjótt við og tryggja að orkan úr virkjununum verði ekki seld öll af svæðinu. Samstaða sé um það innan hópsins að bjóða atvinnutækifærum af þessu tagi aðstöðu til uppbyggingar. Samþykkti fundurinn að senda frá sér yfirlýsingu um óskir þess efnis að skoðaðir verði rækilega möguleikar á því að orkufrek atvinnuuppbygging fari fram innan þessara fjögurra sveitarfélaga. Verður leitað eftir stuðningi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira