Skuldir heimilanna nærri 1.800 milljarðar um mitt ár 16. október 2008 13:10 MYND/Valgarður
Skuldir íslenskra heimila við lánastofnanir vou 1.760 milljarðar króna um mitt ár samkvæmt tölum Seðlabankans. Höfðu þær aukist um rúma 200 milljarða á fyrri helmingi ársins eða um 13,5 prósent. Vitnað er til þessara talna í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Með lánakerfinu er átt við banka, Íbúðalánasjóð, lífeyrissjóði, LÍN og tryggingarfélög. Þar kemur fram að skuldir heimilanna hafi verið um 1550 milljarðar um síðustu áramót og námu ráðstöfunartekjur heimilanna á sama tíma rétt rúmum 700 milljörðum. Því var skuldin rúmlega tvöfaldar ráðstöfunartekjur ársins. „Skuldir við Íbúðalánasjóð eru vegna íbúðakaupa og mestur hluti lána við lífeyrissjóði. Af skuldum við bankana teljast 60% vera vegna íbúðakaupa meðan lán LÍN og skuldir við tryggingarfélög eru vegna annars," segir í vefritinu. Þar kemur enn fremur fram skuldir við bankana hafi verið um þúsund milljarðar á miðju ári, þar af 626 milljarðar verðtryggðar skuldir meðan 210 milljarðar voru gengistryggð lán. Yfirdráttarlán heimilanna námu 81 milljarði, óverðtryggð lán 28 milljörðum og eignarleigusamningar 21 milljarði. Fjórðungur skuldar ekki neitt í íbúðum sínum Enn fremur kemur í ljós að skuldir vegna íbúðakaupa hafi verið 840 milljarðar um síðustu áramót á meðan verðmæti framtalinna fasteigna taldist nær 2.400 milljarðar. Tæplega 97 þúsund fjölskyldur telja fram fasteignir og af þeim telur fjórðungur ekki fram neinar skuldir. „Hins vegar voru skuldir vegna íbúðakaupa yfir 80% af verðmæti hjá um fjórðungi þeirra sem þá eru eftir, alls 17.500 fjölskyldum og samtals töldust skuldir þess hóps vegna íbúðakaupa um 300 ma.kr. um síðustu áramót en heildarskuldir 357 milljarðar. Eins og eðlilegt hlýtur að teljast er aðallega um að ræða yngra fólk, en meðalaldurinn í þessum hópi er tæplega 40 ár, sem er um tíu árum undir meðalaldri allra með íbúðalán. Þótt þessi hópur sé líklega viðkvæmari fyrir þeim áföllum sem nú dynja yfir, er greiðslugeta þeirra af lánum enn fyrir hendi. Þá er atvinnuleysi enn hlutfallslega lítið þótt það sé tekið að aukast," segir fjármálaráðuneytið.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira