Telur ekki þörf á endurskoðun fjárlaga 30. apríl 2008 14:20 MYND/GVA
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segist ekki enn hafa séð þær forsendur sem kalli á endurskoðun á grunni fjárlaga þessa árs umfram það sem hefðbundið er þegar unnið sé að fjáraukalögum að hausti. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Birkir benti á nýleg svör Seðlabankans við spurningum Framsóknarflokksins um efnahagsmál en þar gæti að líta ádrepu á ríkisstjórnina. Sagði Birkir Jón forsendur fjárlaga „mölbrostnar" og spurði ráðherra hvort hann hygðist endurskoða forsendur þeirra. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði framsóknarmenn velja úr svörum Seðlabankans og gagnrýndi að þeim fyndist sem það væru bara fjárlög þessa árs sem hefðu valdið þenslu síðustu ára, ekki til að mynda hækkun á lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs eða skattalækkanir. Samkvæmt þessu hefði engin þensla orðið fyrr en Framsóknarflokkfurinn hefði farið úr ríkisstjórn í fyrra. Fjármálaráðherra sagði enn fremur að í svari Seðlabankans segði ekki að ákvarðanir í fjárlögum þessa árs hefðu verið rangar. Ef draga ætti ályktanir af svörum Seðlabankans þá ætti ríkissjóður að draga úr umsvifum á þessu ári. Hann væri hins vegar ekki þeirrar skoðunar að það ætti að gera og spurði hann framsóknarmenn hvort þeir teldu það skynsamlegt. Sagðist hann enn ekki hafa séð forsendur sem kölluðu á endurskoðun á grunni fjárlaga umfram það sem hefðbundið væri þegar unnið væri að fjáraukalö0gum fyrir haustið.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira