Svipti sig lífi á geðdeild 19. september 2008 18:59
Karlmaður framdi sjálfsvíg inni á geðdeild Landspítala háskólasjúkrahúss fyrir skömmu. Málið er til skoðunar hjá Landlæknisembættinu en Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir ekki hægt að fyrirbyggja öll sjálfsvíg inni á geðdeildum, til þess sé geðlæknisfræðin of skammt á veg komin. Þetta mun ekki í fyrsta sinn sem manneskju tekst að binda enda á líf sitt inni á geðdeild. Öll slík tilvik eru send Landlæknisembættinu til skoðunar og við þá athugun er meðal annars kannað hvort nægilegt eftirlit hafi verið með viðkomandi sjúklingi og hvort hann hafi sýnt einhver þau merki sem boðað gætu sjálfsvígshugleiðingar. Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir, segir þó erfitt að meta svona mál því hættumerkin séu ekki augljós og sjúklingar sem eru veikir á geði gjarnan leiknir í að blekkja jafnvel fagfólk. Auk þess geti sjúklingum sem tekið hafa ákvörðun um að binda endi á líf sitt liðið mjög vel - eins og þungu fargi sé af þeim létt. Sömuleiðis geti verið örðugt að meta það hvort nægilegt eftirlit hafi verið með viðkomandi sjúklingum. Of strangt eftirlit geti hamlað bata geðsjúkra og eitthvert frjálsræði því stundum nauðsynlegt. Því sé ekki hægt að fyrirbyggja með öllu að sjúklingar inni á geðdeild nái að taka sitt eigið líf.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira