Sigurður G: Ríkisvæðing Glitnis stenst ekki lög 30. september 2008 17:27 Sigurður G. Guðjónsson.
Sigurður G. Guðjónsson, lögfræðingur og stjórnarmaður í Glitni, segir að yfirtaka ríkisins á 75% hlut í Glitni standist ekki þau lög sem gilda um Seðlabankann og greiðslur úr ríkissjóði. Þetta kom fram í viðtali við Sigurð í þættinum Reykjavík síðdegis fyrr í dag. Sigurður segir að hvorki Seðlabankinn eða ríkisstjórnin hafi leitað annarra leiða en sú sem varð fyrir valinu. ,,Mönnum var ekki einu sinni rétt blað heldur varð að nema það af orðum fyrrverandi forsætisráðherra hvaða skilyrði fylgdu því að Seðlabankinn myndi leggja til nýtt hlutafé í Glitnibanka," segir Sigurður og bætir við að lögfræðingar hafi þurft að bera stjórnarmönnum í Glitni þessi skilaboð og skrifa þau niður svo hægt væri að senda skjal til baka með þeim orðum sem seðlabankastjóri hafi haft frammi. ,,Þetta eru gjörsamlega forkastanleg vinnubrögð og þau eru ekki í neinum takt við þau lög sem gilda um Seðlbankann eða um greiðslur úr ríkissjóði Íslands," segir Sigurður. Ákvörðun Seðlabankans er vanhugsuð og illa framkvæmd aðgerð, að mati Sigurður. ,,Ríkisstjórnin og Alþingi virðast eiga að druslast með. Valdið er ekki lengur hjá Alþingi eða ríkisstjórn heldur er það komið upp í Seðlabanka og við það geri ég alvarlegar athugasemdir." Sigurður segir að stjórnmálamenn og viðskiptalífið verði að koma saman og finna leiðir til að halda atvinnustarfsemi gangandi á næstu mánuðum. Þá telur Sigurður fráleitt að verið sé að ræða um sameiningu Glitnis og Landsbankans en þreifingar þess efnis hafa átt sér stað. Slíkt hafi átt að gera fyrir helgi og um helgina. Sigurður bendir auk þess á að ríkið er enn ekki orðið eigandi 75% hlutar í Glitni.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira