Líkt og meirihlutinn hafi eitthvað að fela 24. október 2008 12:34 Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn er neikvæður og tregur til að veita skýr svör þegar kemur að ýmsum útgjöldum borgarsjóðs, að mati Ólafs F. Magnúsonar borgarfulltrúa. Ólafur lagði til í borgarstjórnar í byrjun september að gerð yrði grein fyrir heildarlaunagreiðslum, ferða- og dagpeningakostnaði, risnu- og veislukostnaði, símgreiðslum og öðrum kostnaði vegna borgarfulltrúa, varaborgarfulltrúa, helstu embættismanna borgarinnar, ásamt stjórnarmönnum, embættismönnum og stjórnendum fyrirtækja í meirihlutaeigu borgarinnar fyrir árin 2005 til 2008. Þar á meðal Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna. Lagt var fyrir borgarráð 18. september yfirlit fyrir kostnað við opinberar móttökur á vegum borgarinnar og ferðakostnað borgarfulltrúa. ,,Núverandi meirihluti dregur lappirnar og það er eins og þau hafi eitthvað að fela. Það eru ekki komin svör við þeim spurningum sem ég lagði fram. Ég er enn að bíða eftir frekari svörum," sagði Ólafur í samtali við Vísi og bætti við að hann hefði alltaf verið talsmaður þess að skera eigi niður ,,flottræfilsháttinn." Ólafur sagði í bókun í borgarstjórn fyrr í vikunni að forgangsröðun í þágu velferðarþjónustu og starfsemi borgarinnar hafa mætt litlum skilningi borgarfulltrúa annarra flokka þar til nú. ,,Loks skal bent á að núverandi meirihluti hóf sitt samstarf með því að fresta borgarráðsfundi vegna ferðalaga helstu lykilmanna í borgarráði. Nú fyrst er verið að snúa við blaðinu og því ber að fagna. Ég segi því loksins, loksins."
Tengdar fréttir Veislukostnaður á vegum borgarinnar nam 119 milljónum á þremur hálfu ári Síðastliðin þrjú og hálft ár hafa opinberar móttökur á vegum borgarinnar kostað tæplega 119 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari borgarstjóra við fyrirspurn Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans, sem lagt var fram í borgarráði í dag. 18. september 2008 15:40 Dagur víðförlastur borgarfulltrúa Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn hefur ferðast langmest allra borgarfulltrúa á kostnað borgarinnar, frá árinu 2005. 19. september 2008 07:07 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira
Veislukostnaður á vegum borgarinnar nam 119 milljónum á þremur hálfu ári Síðastliðin þrjú og hálft ár hafa opinberar móttökur á vegum borgarinnar kostað tæplega 119 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari borgarstjóra við fyrirspurn Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans, sem lagt var fram í borgarráði í dag. 18. september 2008 15:40
Dagur víðförlastur borgarfulltrúa Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn hefur ferðast langmest allra borgarfulltrúa á kostnað borgarinnar, frá árinu 2005. 19. september 2008 07:07