Veislukostnaður á vegum borgarinnar nam 119 milljónum á þremur hálfu ári 18. september 2008 15:40
Síðastliðin þrjú og hálft ár hafa opinberar móttökur á vegum borgarinnar kostað tæplega 119 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari borgarstjóra við fyrirspurn Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans, sem lagt var fram í borgarráði í dag. Ólafur spurði um ferða- og dagpeninga og veislu- og risnukostnað sérhvers borgarstjóra frá áramótum 2005 til dagsins í dag. Þau svör sem hann fékk voru á þá leið að í bókhaldi borgarinnar sé enginn liður sem heitir veislu- og risnukostnaður borgarstjóra. Kostnaður af öllum opinberum móttökum á vegum borgarinnar væri hins vegar tekinn saman undir tveimur kostnaðarliðum og samtals næmi sá kostnaður tæpum 119 milljónum króna á tímabilinu. Árið 2005 nam þessi kostnaður 25,6 milljónum króna en þá var Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Árið 2006 reyndist kostnaðurinn 37,3 milljónir en þá voru Steinunn Valdís og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjórar, hvort í sex mánuði. Í fyrra var Vilhjálmur borgarstjóri í um níu mánuði en Dagur B. Eggertsson í þrjá. Kostnaður það árið reyndist 37 milljónir króna. Það sem af er þessu ári hafa þrír gengt embætti borgarstjóra, Dagur, Ólafur F. Magnússon og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Veislukostnaður á vegum borgarinnar nemur nærri 19 milljónum króna það sem af er. 60 starfsmenn borgarinnar með yfir 700 þúsund krónur í laun Ólafur spurði einnig um ferða- og dagpeningakostnað helstu embættismanna í fyrirtækjum borgarinnar eins og Orkuveitunni og Faxaflóahöfnum. Þau svör voru gefin að þær upplýsingar væru ekki í bókhaldi Reykjavíkurborgar en fyrirspurninni hefðu verið beint til viðkomandi fyrirtækja. Þá spurði Ólafur einnig hversu margir einstaklingar hjá borginni væru með yfir 700 þúsund krónur í mánaðarlaun síðustu ár. Hefur þeim fjölgað úr 25 árið 2005 í 60 í ár sem eru með slíka upphæð í heildarlaun. Þar af eru 27 æðstu stjórnendur borgarinnar sem heyra undir kjaranefnd borgarinnar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira