Erlent

Hillary sigraði í bæði Ohio og Texas

Hillary Clinton sigraði í bæði Ohio og Texas í forkosningunum þar í nótt. Þar með er ljóst að baráttu hennar og Barak Obama er hvergi nærri lokið

Mikil spenna var í alla nótt meðan á talningu stóð í Ohio og Texas. Að lokum stóð Hillary uppi sem sigurvegari í Ohio og nú fyrir nokkrum mínútum lýsti CNN fréttastöðin því yfir að Hillary hefði einnig sigraði í Texas en mjög mjótt var á muninum milli þeirra í því ríki. Í Vermont vann Obama öruggan sigur en Hillary sigraði á Rhode Island.

Hillary var að vonum glöð þegar úrslitin lágu fyrir í Ohio enda var pólitískur ferill hennar í stórhættu hefði hún tapað þeim kosningum. Hún sagði stuðningsmönnum sínum að hún myndi halda baráttu sinni áfram og hlakkaði til að takast á við Barak Obama á komandi vikum. Obama huggar sig við það að hann hefur enn örlitla forystu á Clinton á landsvísu.

Hvað Repúblikana varðar sigarði John McCain stórt í öllum ríkjunum fjórum sem kosið var í og er nú kominn með nógu marga kjörmenn til að vera frambjóðandi flokks síns. Mike Huckabee lýsti yfir ósigri sínum og jafnframt því að hann styður nú McCain í baráttu hans. Búist er við að George Bush lýsi einnig yfir stuðningi við Mccain í dag.


Tengdar fréttir

Obama dregur verulega á Clinton í Ohio

Nú þegar aðeins vika er til forkosninga Demókrata í ríkinu Ohio sýnir ný skoðannakönnun að Barak Obama hefur dregið verulega á Hillary Clinton.

Clinton og Obama þræta í Texas

Hillary Clinton sakaði í gær keppinaut sinn Barack Obama um pólitískan ritstuld í beinni sjónvarpsútsendingu. Obama gerði lítið úr ásökuninni og sagðist standa fyrir öruggum breytingum, aðferð Clinton væri hluti af „bjánalegum“ stjórnmálaslag.

Obama hvetur Hillary til að gefast upp

Líkur eru á að úrslitin í forkosningunum fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum muni ráðast í dag. Kosið er í fjórum ríkjum en allra augu beinast að Texas og Ohio.

Nýs forseta bíða miklar áskoranir í utanríkismálum

Næsti forseti Bandaríkjanna mun standa frammi fyrir mun meiri áskorunum í utanríkismálum en núverandi forseti þegar hann tók við embætti. Möguleikinn á fyrsta kvenforsetanum, eða svarta forsetanum hefur beint sjónum manna að demókrataflokknum. Sérstaklega þegar tekið er tillit til óánægju á alþjóðavettvangi með utanríkisstefnu Bush sem þykir hafa orsakað sundrungu og sundurlyndi.

Auglýsingastríð Clinton og Obama

Barack Obama og Hillary Clinton berjast nú um atkvæði í Texas og Ohio nokkrum dögum fyrir forkosningar í ríkjunum sem gætu skipt sköpum fyrir Clinton. Bæði framboð Obama og Bill Clinton hafa lýst því yfir að Hillary verði að ná góðum árangri í ríkjunum á þriðjudag ef hún á að halda áfram baráttu fyrir tilnefningu Demókrata.

Clinton líkir Obama við Bush

Hillary Clinton hefur síðustu daga hert árásir sínar á Barack Obama í þeirri von að vinna til sín fylgi í prófkjörunum á þriðjudag í næstu viku. Clinton má ekki lengur við því að tapa fyrir Obama í þeim fáu fjölmennu ríkjum sem enn á eftir að kjósa í, því þá væri nokkuð víst að Obama færi með sigur af hólmi í baráttu Demókrataflokksins um það hvort þeirra verður forsetaefni í kosningunum í haust.

Barak Obama sigraði í Wisconsin

Barak Obama sigraði í forkosningunum í Wisconsin í nótt og er þetta níundi sigur hans í röð í baráttunni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins.

Barak og Hillary hnífjöfn í Texas

Tvær nýjar skoðanakannanir í Texas sýna að Barak Obama og Hillary Clinton eru hnífjöfn hvað fylgi varðar meðal Demókrata. Fréttaskýrendur eru sammála um að ef Clinton vinni ekki í Texas og eða Ohio sé hún búin að tapa baráttunni við Obama.

Barack Obama með túrban

Hillary Clinton og liðsmenn hennar eru orðin svo örvæntingarfull vegna velgengni Baraks Obama að þau hafa sent mynd af honum með túrban til fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×