„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Bjarki Sigurðsson skrifar 4. október 2026 16:30 Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds bílaleigu. vísir/egill Forstjóri stærstu bílaleigu landsins segist ekki vita hvort hann eigi að hlæja eða gráta yfir hugmyndum innviðaráðherra um breytingar á innheimtu hraðasekta. Starfsmenn bílaleiga geri vart annað en að sinna innheimtu fyrir ríkið þessa dagana.
Áform um breytingar á umferðarlögum voru kynnt í samráðsgátt í síðasta mánuði. Þar er meðal rætt að taka upp hlutlæga refsiábyrgð eigenda ökutækis vegna hraðakstursbrota. Það þýðir að eigendur ökutækja þurfi að greiða hraðasektir þó að þeir hafi ekki endilega verið við stýrið þegar brotið var framið. Breytingin mun að öllum líkindum hafa mest áhrif á bílaleigur. Hingað til hefur lögreglan innheimt sektina beint frá leigjanda en með breytingunum yrðu bílaleigurnar að greiða sektina og rukka svo þann sem leigði bílinn. Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar, segir breytinguna grátbroslega. „Það er eiginlega merkilegt hvað á að leggja á okkur í innheimtu fyrir ríkissjóð. Það er búið að bæta ýmsu á okkur undanfarin misseri. Ef það á að bæta enn einum liðnum sem í þessu tilfelli er að við séum ábyrg fyrir greiðslu umferðarlagabrota, þar með talið hraðasekta fyrir okkar leigutaka, þá er í rauninni verið að vinna þvert á markmið umferðarlaga um að vernda líf og heilsu vegfarenda. Þessir leigutakar hugsa þá sem svo: Það skiptir engu máli þó ég verði tekinn fyrir ofsaakstur, ég þarf ekki að borga. Ég get bara látið bílaleiguna borga og loka kortinu mínu. Ég veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa eða hvað þegar maður sér svona.“ Hann býst við að Samtök ferðaþjónustunnar sendi neikvæða umsögn vegna málsins. Steingrímur segir þetta bætast ofan á fleiri mál þar sem gjöld á bílaleigur eru aukin, meðal annars með innleiðingu kílómetragjalds. „Þau segja að það er nóg til. Einhvers staðar heyrði ég það sagt af ráðamanni. Það má vera að það sé nóg til einhvers staðar en það er allavega ekki hjá okkur. Það er alveg ljóst að það er orðið miklu hærra hlutfall af okkar vinnu að standa í einhvers konar innheimtu fyrir ríkissjóð. Og með tilheyrandi kostnaði og gríðarlegu vinnuálagi á okkar fólk. Ekki fáum við mikið fyrir. Það er alveg á hreinu. Þetta er algjörlega vanhugsað og eins og ég segi grátbroslegt. Við munum náttúrulega mótmæla þessu harðlega.“
Bílaleigur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira