Ísbjörninn var grænmetisæta 12. júní 2008 12:12
Ísbjörninn sem gekk á land fyrir norðan í síðustu viku er að öllum líkindum eldri en menn höfðu áður talið. Gróðurleifar fundust í maga hans við krufningu en hvorki kjöt né fiskur. Forstöðumaður Náttúrufræðistofu á Norð-vesturlandi segir að rétt hafi verið að aflífa dýrið. Ísbjörninn var krufinn í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki í gær. Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu á Norðvesturlandi, segir að líklegast sé að dýrið hafi gengið á land á utanverðum Skaga, en þá var rekísspöngin um 40 - 60 sjómílur frá landi. Þegar björninn var vigtaður í gær reyndist hann vera 216 kíló sem undir venjulegum kringumstæðum benti til að dýrið væri ungt. Hins vegar voru tennur þannig slitnar að líkur eru á að um fullorðið karldýr sé að ræða en þau geta náð allt að sex til sjö hundruð kílóa þyngd, en það er þó misjafnt eftir stofnum. Þorsteinn segir að öllum sýnatökum hafi lokið í gær en það taki nokkurn tíma að rannsaka þau. Hann segist skilja að mörgum gremjist að dýrið hafi verið fellt en það sé ekki einfalt mál að deyfa ísbjörn og halda honum deyfðum. Líkur eru á að ísbjörninn hafi verið búinn að vera á landi í að minnsta kosti sólarhring því eins og fréttablaðið Feykir greinir frá í dag sá níu ára stúlka björninn daginn áður en hann var felldur.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira