Frelsa þarf Evrópuumræðuna úr flokkunum sem óttast átök 29. apríl 2008 22:42 MYND/Pjetur
Viðskiptaráðherra telur að finna verði leiðir og vegvísa til að frelsa Evópusambandsumræðuna út úr flokkunum sem óttast átök og klofning. Þjóðin muni ráða þessu sjálf að lokum og eigi að gera það. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra gerir grein Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi Seðlabankastjóra og formanns Framsóknarflokksins, í Morgunblaðinu í dag að umtalsefni í pistli á heimasíðu sinni. Þar sagði Jón að tími væri kominn til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Björgvin segir greinina boða breytingar á umræðunni um Evrópumál. ,,Hún er um leið tákn um þann þunga sem er í umræðunni. Yfirveguð grein Jóns er til marks um að stór hluti Framsóknarflokksins er tilbúinn til að láta til skarar skríða og keyra fram nýja stefnu flokksins í þessu máli," segir Björgvin. Þá segir Björgvin að greinin boði einnig aðrar breytingar, þær að umræðan fari upp úr förum flokkastjórnmála og flokkarnir skiptist í afstöðu sinni til málsins. ,,Líklega allir nema Samfylkingin sem hefur þá stefnu að sækja beri um aðild að ESB," segir Björgvin. Viðskiptaráðherra heldur því enn fremur fram að finna verði leiðir og vegvísa til að frelsa umræðuna út úr flokkunum sem óttist átök og klofning. Þjóðin muni ráða þessu sjálf að lokum og eigi að gera það. ,,Þessvegna þykir mér vel koma til greina að viðhafa tvöfalt þjóðarakvæði. Fyrst um aðildarumsóknina sjálfa og annað um samninginn þegar hann liggur fyrir," segir Björgvin. Þá sé tryggt að góður meirihluti sé fyrir aðildarumsókn og ágæt sátt um málið á meðal almennings. ,,Um leið hitt að kaleikurinn er tekinn frá flokknum og við komumst áfram með þetta stærsta hagsmunamál okkar tíma," segir viðskiptaráðherra enn fremur.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira