Hið opinbera rekið með 71 milljarðs afgangi í fyrra 18. september 2008 09:09 MYND/E.Ól
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um nærri 71 milljarð króna í fyrra, eða sem nemur 5,5 prósentum af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í yfirliti Hagstofunnar yfir fjármál hins opinbera. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 6,3 prósent af landsframleiðslu árið 2006 og 4,9 prósent árið 2005. Á vef Hagstofunnar segir að þessi góða afkoma í fyrra stafi fyrst og fremst af miklum tekjuafgangi ríkissjóðs sem nam fjórum prósentum af landsframleiðslu. Fjárhagur sveitarfélaganna hafi þó verið jákvæður síðustu þrjú árin þótt hann sé misjafn. Árið 2007 nam tekjuafgangur þeirra 8 milljörðum króna, eða 0,6 prósentum af landsframleiðslu, og árið 2006 um fjórum milljörðum króna, eða 0,3 prósent af landsframleiðslu. Alls reyndust tekjur hins opinbera 624 milljarðar króna í fyrra og hækkuðu um 63 milljarða á milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu námu þær nærri 50 prósentum og hafa ekki í annan tíma verið hærri. Útgjöld hins opinbera námu 553 milljörðum króna í fyrra og hækkuðu um nærri 67 milljarða króna, eða nærri fjórum milljörðum króna meira en tekljurnar.Heildarútgjöld til heilbrigðismála í fyrra námu 119 milljörðum króna, eða 9,2 prósentum af landsframleiðslu. Til fræðslumála var ráðstafað rúmum 106 milljörðum króna og til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera rúmum 111 milljörðum króna. „Heildar peningaleg eign hins opinbera nam 709 milljörðum króna og heildarskuldir ríflega 700 milljörðum króna. Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var jákvæð um 8,6 milljarða króna í árslok 2007, eða um 0,7% af landsframleiðslu," segir enn fremur á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í lýðháskóla Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Fleiri fréttir Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Sjá meira