Helguvíkurálver fær losunarheimildir 30. september 2008 16:51 Byrjað er að steypa upp kerskála álversins í Helguvík.
Rio Tinto Alcan, álver Norðuráls í Helguvík og Alcoa Fjarðaál í Reyðarfirði fengu í dag úthlutað losunarheimildum fyrir gróðurhúsalofttegundir. Úthlutunarnefnd losunarheimilda lauk í dag fyrstu árlegu endurskoðun á áætlun sinni. Alcan fær 152 þúsund tonna losunarheimild til aukinnar framleiðslu, Norðurál fær 539 þúsund tonn vegna fyrri áfanga Helguvíkurálvers og Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði 29 þúsund tonn til aukinnar álframleiðslu. Samtals gera þetta rúm 720 þúsund tonn í losunarheimildir. Aðeins er úthlutað til atvinnurekstrar sem hyggur á nýja eða aukna framleiðslu fyrir árslok 2012. „Miðað við fyrirliggjandi gögn telur nefndin ljóst að undirbúningur áðurnefndra framkvæmda er það langt á veg kominn að framleiðsla geti hafist á umræddu tímabili," segir í tilkynningu umhverfisráðuneytisins. „Að mati nefndarinnar eru ekki forsendur til að úthluta heimildum til annarra umsækjenda að svo stöddu. Óvissa er enn um stöðu þeirra t.d. varðandi orkuöflun, niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum, útgáfu starfsleyfis og skipulagsforsendur. Þau fyrirtæki sem hér um ræðir eru RioTinto Alcan í Þorlákshöfn, Tomahawk Development í Helguvík, Alcoa á Bakka við Húsavík og RioTinto Alcan í Straumsvík 2," segir í tilkynningunni. Nefndin hyggst auglýsa losunarheimildir til umsóknar á næsta ári og gefst þá tækifæri til að senda inn nýjar umsóknir. Þá verða eftir til ráðstöfunar um 1,1 milljón losunarheimilda.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira