Innlent

Víða uppsagnir í byggingariðnaðinum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Byggingarvinna. Myndin tengist ekki þessari frétt.
Byggingarvinna. Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Vilhelm Gunnarsson

Vísir greindi frá því í dag að steypustöðin Mest í Hafnarfirði hefði sagt upp 30 manns frá komandi mánaðamótum vegna samdráttar í byggingariðnaðinum. Sú bára er ekki stök en einnig bárust fréttir af uppsögnum hjá ÞG verktökum.

„Það er eitthvað um það já," sagði Þorvaldur Gissurarson, framkvæmdastjóri ÞG verktaka. Hann tók þó fram að ekki væri um stóran hluta starfsmanna að ræða, innan við 10%, en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu fyrirtækisins starfa þar 160 manns.

„Við munum draga saman og erum að draga saman í íbúðabyggingum og eigin verkefnum en það er í sjálfu sér alveg nóg að gera í öðrum verkum," sagði Þorvaldur enn fremur og benti þar sértaklega á verkefni sem unnin eru fyrir aðra aðila, þ.e. ekki fyrir reikning fyrirtækisins. Hann sagði óvissuástandið sem nú ríkir mest áhrif hafa á stöðuna hjá byggingaverktökum. „Þetta er markaður sem er alveg útilokað að spá fyrir um og ég bara treysti mér ekki til þess," sagði Þorvaldur þegar blaðamaður innti hann eftir spá fyrir sumarmánuðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×