Innlent

Fjölmargir teknir fyrir hraðakstur í Árbænum

Brot 21 ökumanns var myndað á Selásbraut í Árbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt við Selásskóla.

Á einni klukkustund eftir hádegi fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 42 kílómetra á klukkustund en þarna er 30 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49 kílómetrahraða.

Á þessum stað á Selásbraut eru hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×