Verða að fá stuðning frá opinberum aðilum 17. nóvember 2008 13:44 Þórarinn Tyrfingsson
Þórarinn Tyrfingsson formaður SÁÁ segir vonlaust fyrir samtökin að halda úti göngudeild á Akureyri fáist ekki stuðningur frá opinberum aðilum. Deildinni hafa samtökin haldið úti í 20 ár en allt þetta ár hefur henni verið haldið úti án fjárveitingar frá Heilbrigðisráðuneytinu sem hefur greitt stóran hluta af kostnaði deildairnnar undanfarin ár. Þetta kemur fram á heimasíðu SÁÁ. Þórarinn segir að á milli 100 og 200 manns fari á hverju ári suðu á Vog af Eyjafjarðarsvæðinu, en mikilvægust sé deildin fyrir aðstandendur áfengis- og vímuefnasjúklinga sem fái mikla fræðslu þar inni. „Göngudeild SÁÁ á Akureyri hefur því í góðri samvinnu við heilsugæsluna, geðdeildina og félagsþjónustuna greitt götu margra inn á Vog og stutt þá síðan eftir meðferðina. Flestir sem á göngudeildina koma þurfa þó ekki að fara suður þar sem þeir fá alla nauðsynlega þjónustu á göngudeildinni. Í þriðja lagi fær aðstandandinn nauðsynlega fræðslu og meðferð," segir Þórarinn í greininni. Þórarinn segir göngudeildina á Akureyri ekki vera þá einu sem ekki hefur fengist fjármagn því það sama sé uppi á teningnum í Reykjavík. „Nú þegar kreppir að er næst vonlaust fyrir SÁÁ að halda Göngudeildinni á Akureyri úti án verulegs stuðnings frá opinberum aðilum. Þjónusta SÁÁ við áfengissjúklinga og aðstandendur þeirra á Akureyri hefur alla tíð verið hornreka og ekki átt upp á pallborðið hjá valdhöfum. Engin hefur viljað eiga þetta óskabarn Akureyrar nema á tyllidögum. Deildin er ekki dýr og vandamálið því lítið ef miðað er við hversu mikið er í húfi fyrir unga áfengis- og vímuefnasjúklinga á Norðurlandi. Valdhafar hafa málið í hendi sé með heilbrigðisráðherra, bæjarstjórann og varaformann fjárlaganefndar í sama flokknum sem er í ríkisstjórn. Það ættu því að vera hæg heimatökin og fátt sem getur komið í veg fyrir að málið leysist eða hvað?," spyr Þórarinn í lok greinarinnar.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira