Litlar líkur á hækkunum á leigubílataxta á næstunni 12. júní 2008 13:29
Leigubílastöðvar gera ekki ráð fyrir hækkunum hjá sér vegna hærra eldsneytisverðs á næstunni. Taxtinn hækkar þó í samræmi við aðrar hækkanir í þjóðfélaginu. Hækkandi olíverð hefur haft mikil áhrif víða í heiminum og hefur komið við buddu þeirra landsmanna sem reka fólksbifreiðar. Róbert Geirsson bifreiðastjóri hjá BSR segir þá endurskoða taxta sinn á 6 mánaðafresti og fari sú endurskoðun eftir framfærsluvísitölu og verðbólgu. Þeir hafi hækkað seinast í byrjun júní og þá hafi til að mynda almennt startgjald farið úr 450 krónum í 500 krónur. Hann telur það ekki koma fram fyrr en með haustinu hvernig kreppan komi við leigubílareksturinn. Á sumrin sé ferðamennskan í landinu það mikill að nóg sé að gera hjá þeim. Hann telur leigubílaverð þurfi að fara eftir því hvað fólk á efni á svo að þeir geti haldið áfram starfsemi sinni. Hlynur Vigfússon er formaður verðlagsnefndar hjá Hreyfli. Hann segir alltaf til athuganar hvernig hækkanir í þjóðfélaginu hafi áhrif á taxtann en samkeppni á leigubílamarkaði mun að öllum líkinum koma í veg fyrir miklar hækkanir. Samkvæmt honum er fólk ekki farið að taka leigubíla minna. Ef eitthvað er þá er fremur aukning í leigubílanotkun. Hreyfill tekur inn allar lágmarkshækkanir og að þeir hafi hækkað verðið um 11-12% á árinu, inni í því er 4-5% vegna bensínhækkanna. Þessar hækkanir sjást meira á kílómetraverðinu en startgjaldið hjá þeim hefur verið 490 krónur í tvö ár.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira