Segja ríkisstjórnina ekki ætla að taka mark á áliti 12. júní 2008 12:00 Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Þingflokkur Frjálslynda flokksins segir svar íslenskra stjórnvalda við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem snýr að fiskveiðikerfinu staðfesta að ríkisstjórnarflokkarnir ætli ekki að taka mark á álitinu og halda áfram að brjóta mannréttindi. Þetta kemur fram í ályktun frá þingflokknum.Eins og fram hefur komið komst mannréttindanefndin að því að íslensk stjórnvöld hefðu brotið gegn mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi með fiskveiðikerfinu.Frjálslyndir gagnrýna að engar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu séu kynntar fyrir mannréttindanefndinni og einungis boðað að efnt verði til allsherjarskoðunar á kerfinu „í náinni framtíð", með breytingar í huga.„Það er ótrúlegt að ríkisstjórnin skuli ekki taka alvarlega álit frá nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem á að meta hvort mannréttindi séu í heiðri höfð hjá aðildarþjóðunum og hvort íslensk löggjöf samræmist skuldbindingum sem eru í þeim alþjóðlegu samningum sem íslensk stjornvöld og Alþingi hafa samþykkt að undirgangast. Á sama tíma leitar utanríkisráðherra Íslands eftir stuðningi þjóða heims við umsókn Íslendinga um sæti í Öryggisráðinu, þeirri stofnun sem tryggja á að mannréttindi séu haldin í heiminum," segir í ályktuninni.Telur þingflokkurinn að ríkisstjórnin hefði strax og álit mannréttindanefndarinnar lá fyrir átt að leita eftir samráði við þingflokka stjórnarandstöðunnar og freista þess að ná samstöðu um nauðsynlegar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu svo tryggt væri að mannréttindabrot Íslendinga með núverandi kerfi heyrðu sögunni til.Þá segjast frjálslyndir áfram berjast gegn fiskveiðikerfinu og fordæmi afstöðu ríkisstjórnarinnar að hunsa álitið, sem beri vott um valdhroka, skort á dómgreind og virðingarleysi fyrir mannréttindum.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira