Tekjur af sölu byggingarréttar aðeins sjö prósent af áætlun 2. október 2008 16:06
Aðalsjóður Reykjavíkurborgar skilaði 3,6 milljarða króna afgangi á fyrri helmingi ársins samkvæmt árshlutareikningi sem lagður var fram í borgarráði í dag. Það er 3,3 milljörðum króna meiri afgangur en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fagsvið borgarinnar er rekin innan fjárheimilda á fyrri helmingi ársins þrátt fyrir meiri verðbólgu. Í bókun meirihlutans um málið kemur fram að þetta sýni að borgin sé vel rekin. Hins vegar séu neikvæðu tíðindin þau að tekjur eignasjóðs af sölu byggingarréttar eru aðeins 7 prósent af áætluðum tekjum og gatnagerðargjöld sömuleiðis langt undir áætlun. „Verðbólga umfram áætlanir og mikil lækkun gengis íslensku krónunnar hafa leitt til mikilla fjármagnsútgjalda hjá eignasjóði langt umfram fjárhagsáætlun. Þessi breyting hjá eignasjóði verður aðallega rakin til ytri áhrifavalda og útkoma eignasjóðs veldur því að A-hluti er rekinn með 395 m.kr. halla í stað tæplega 4,4 milljarða afgangs skv. fjárhagsáætlun," segir í bókuninni. Aðgerðaáætlun kynnt í næstu viku Meirihlutinn bendir að unnið sé að aðgerðaáætlun vegna breytinga í fjármála- og atvinnuumhverfi. Markmið aðgerðaáætlunarinnar sé að móta pólitískar megináherslur í fjárhagsáætlunargerð borgarinnar fyrir næstu tvö ár, þar sem staðinn verði vörður um ábyrga fjármálastjórn samhliða traustri grunnþjónustu. „Mjög mikil vinna hefur átt sér stað á undanförnum vikum með aðkomu embættismanna og kjörinna fulltrúa frá meirihluta og minnihluta og verður kynnt í næstu viku," segir í bókun meirihlutans. Minnihluti Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna segir að fagsvið borgarinnar sýni ábyrgð í rekstri en að stærstu frávikin í fjárhagsáætlun felist í pólitískum ákvörðunum og skorti á því að brugðist hafi við breyttu árferði með nauðsynlegum ákvörðunum. „Ýmis uppkaup eigna voru augljóslega umfram efni og Sjálfstæðisflokkurinn hefur látið reka á reiðanum í fjármálastjórn borgarinnar frá því að borgarráði var fyrst greint frá því í hvað stefndi, í mars sl. Um það hafa raunar borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sjálfir vitnað að undanförnu á opinberum vettvangi," segir minnihlutinn. Endurskoða þarf fjárfestingar og fjármögnun vegna kreppu Þá vitnar minnihlutinn til ábendingar fjármálaskrifstofu um að brýnt sé að hraða ákvörðunartöku um endurskoðun fjárfestinga og fjármögnun þeirra í ljósi breyttra tekna og aðgengis að lánsfé". Þessi alvarlega ábending eigi sér fá fordæmi en skýrist af því að viðsnúningur framkvæmda- og eignasviðs samkvæmt uppgjörinu sé neikvæður um tæpa níu milljarða. „Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir alvarlegri stöðu og erfiðum verkefnum í fjármálum og rekstri. Þau pólitísku lausatök sem því miður hafa verið staðreynd það sem af er ári duga ekki við þær aðstæður," segir minnihlutinn.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira