Erlent

Heimsbyggðin hallast að Obama

John McCain og Barack Obama
John McCain og Barack Obama

Ef heimsbyggðin tæki þátt í forsetakosningunum í Bandaríkjunum færi Barack Obama með sigur af hólmi. Þessar niðurstöður má sjá á heimasíðu þar sem fólk víða úr heiminum getur greitt frambjóðendunum tveimur atkvæði. Obama er með rúmlega 86% stuðning heimsbyggðarinnar á móti tæpum 14% John McCain.

Á síðunni má sjá hvaðan fólk er að kjósa en yfir 80.000 atkvæði hafa borist frá um 167 löndum.

Íslendingar eru sem fyrr framarlega í netkosningunni en alls hafa rúmlega 3200 íslendingar kosið en Obama er með yfir 90% stuðning íslensku þjóðarinnar.

Hægt er að kjósa hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×