Innlent

Mikilvægt að efla Ráðgjafarstofu heimilanna

Mikilvægt er að efla Ráðgjafarstofu heimilanna til að hægt sé að aðstoða þau heimili í landinu sem sjá fram á mikla erfiðleika eða gjaldþrot á næstunni.

Þetta kom fram á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Fulltrúar frá ASÍ og talsmaður neytenda mættu á fund nefndarinnar til að ræða þessi mál. Guðfinna Bjarnadóttir, varaformaður Viðskiptanefndar, sagði í samtali við fréttastofu að það væri brýnt að taka þessum málum sem fyrst.

Þá kom einnig fram sú hugmynd að útbúa fræðsluefni til að fólk gæti tekið á sínum málum áður en í óefni væri komið. Nefndin fundar um stöðu atvinnulífsins á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×