Skjalasafn Bjarna Benediktssonar afhent Borgarskjalasafni 30. apríl 2008 15:10 Bjarni Benediktsson.
Einkaskjalasafn Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra, var formlega afhent Borgarskjalasafni Reykjavíkur til varðveislu og eignar í Höfða í dag, en hann hefði orðið 100 ára í dag. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon og Björn Bjarnason fyrir hönd lögerfingja Bjarna undirrituðu samning um afhendinguna en í honum kemur fram hvaða skjöl eru afhent og hvaða aðgangsskilyrði eru að þeim. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða einstaklega yfirgripsmikið og umfangsmikið skjalasafn sem spannar allt frá æskudögum hans til dauðadags. „Bjarni Benediktsson fæddist árið 1908 og lést árið 1970 á hátindi ferils síns. Bréfa- og málasafn hans spannar allan pólitískan feril hans, þar með talið frá tíma hans sem borgarfulltrúi, borgarstjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, þingmaður, dóms- og kirkjumálaráðherra, menntamálaráðherra, utanríkisráðherra og forsætisráðherra," segir í tilkynningunni. „Sömuleiðis eru í safninu skjöl frá störfum hans sem ritstjóri Morgunblaðsins, lagaprófessor og lögmaður. Um er að ræða móttekin bréf, afrit útsendra bréfa, greinargerðir, skýrslur, minnisblöð og fleira. Meðal annars er til umfjöllunar stjórnarskrármálið, utanríkismál, efnahagsmál og fleira. Í safninu er mikið magn af ræðum og greinum og sömuleiðis drög að ræðum sem sýna hvernig þær hafa mótast. Þá er í safninu fjöldi ljósmynda, einkum af opinberum viðburðum en eitthvað af fjölskyldumyndum." Þá segir að unnið sé að skráningu skjalasafnsins og mun það verða opnað til rannsókna eigi síðar en 1. febrúar 2009. Sérstök vefsíða tileinkuð Bjarna var opnuð í tilefni dagsins.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira