Frestur í Icesave málinu rennur út á miðnætti 13. nóvember 2008 18:33
Íslensk stjórnvöld hafa til miðnættis að leysa deiluna við Breta um Icesave-reikningana. Lausn mun í burðarliðnum, breska ríkið mun reiða fram jafnvirði rösklega 600 milljarða króna til að borga þeim sem áttu fé inn á Icesave-reikningum Landsbankans. Það er ekki ofmælt að þjóðin hafi verið illa upplýst um Icesave-deiluna. Ráðamenn hafa lengst af fullyrt að lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sé algerlega ótengt Icesave-deilunni. Fyrir viku sagði forsætisráðherra orðrétt: við munum ekki láta kúga okkur til að blanda þessum tveimur málum saman. Nú er ljóst að það er rangt. Þingflokkar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks voru kallaðir saman í gærkvöldi. Þar kom fram, samkvæmt heimildum fréttastofu, að búið væri að loka öllum dyrum á Ísland. Ef við leystum ekki Icesave-deiluna fengi íslenska ríkið ekkert af þeim lánum sem leitað hefur verið eftir - ekki einu sinni frá Norðurlöndunum. En um hvað snerist deilan? Jú, að íslenska ríkið taldi að sér bæri ekki að greiða meira en það sem til er í tryggingasjóði innistæðueigenda. Það er um 3% af þeim 600 milljörðum sem ríkinu ber að greiða. Sú röksemd féll hvergi í kramið utan landsteinanna. Og nú liggur fyrir samkvæmt heimildum fréttastofu að brátt dragi til tíðinda, enda hafi íslensk stjórnvöld aðeins frest til miðnættis að leggja fram lausn. Hún mun felast í því að Bretar greiði breskum sparifjáreigendum tryggingu upp að hámarki rúmar 20 þúsund evrur, skyldutryggingu samkvæmt EES reglum. Íslenska ríkið ábyrgist að greiða upphæðina til baka og fær eignir Landsbankans í Bretlandi og getur farið að koma þeim í verð. Talið er að sala á þeim dugi nánast til að greiða upplánið frá Bretum. Því bendir allt til þess að skellurinn á íslenska skattborgara verði fjarri því eins harkalegur og umræða síðustu vikna hefur gefið tilefni til að halda. Fréttastofa reyndi að fá viðtal við forsætisráðherra, breska sendiherrann á Íslandi og formann skilanefndar Landsbankans, við vinnslu þessarar fréttar, án árangurs. Einnig sendi fréttastofa skilanefndinni ítarlegan spurningalista. Engin svör bárust. Forsætisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu nú síðdegis og ítrekar að innistæðueigendur hér þurfi ekki að óttast um fé sitt í íslenskum bönkum. Þær innistæður sé að fullu tryggðar.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira