Erlent

Segjast vita hvar gíslar eru niðurkomnir

Óli Tynes skrifar
Frá Khartoum, höfuðborg Súdans.
Frá Khartoum, höfuðborg Súdans.

Yfirvöld í Súdan segjast vita hvar nítján gíslar sem rænt var í Egyptalandi í gær eru niðurkomnir.

Ræningjarnir fóru með fólkið yfir landamærin í gær. Meðal þeirra eru fimm ferðamenn frá Ítalíu, fimm frá Þýskalandi og einn frá Rúmeníu. Hinir eru Egyptar.

Mannræningjarnir eru sagðir hafa heimtað um 800 milljónir króna í lausnargjald.

Innanríkisráðherra Súdans segir að engar áætlanir séu um að frelsa gíslana með hervaldi, þar sem það geti stofnð þeim í hættu.

Verið sé að samræma aðgerðir við yfirvöld í Egyptalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×