Bláu tunnurnar vinsælar í borginni 5. maí 2008 15:07 MYND/GVA
Hinar svokölluðu bláu ruslatunnur sem eingöngu eru notaðar undir pappír njóta sífellt meiri vinsælda í borginni og eru nærri 1700 slíkar nú komnar í umferð. Í frétt frá umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar segir að um það bil 50 tunnur sé pantaðar vikulega hjá Sorphirðu Reykjavíkur. „Tæplega 60 tonn af dagblöðum söfnuðust í marsmánuði í bláu tunnurnar en það er þriðjungur þess magns sem safnast í grenndargámana," segir Guðmundur B. Friðriksson hjá skrifstofu Neyslu- og úrgangs á umhverfis- og samgöngusviði. Þrátt fyrir þetta hefur magn dagblaða í grenndargámum ekki minnkað. „Við náum greinilega til nýs hóps sem vill flokka pappír og annað sorp," segir Guðmundur og og bendir á að þar sem Reykvíkingar séu um þessar mundir 119 þúsund megi segja að hálft kíló af dagblöðum hafi safnast í bláar tunnur á hvern íbúa í marsmánuði. Viðskiptavinir Sorphirðunnar virðast ánægðir með veitta þjónustu vegna bláu tunnunnar að mati Guðmundar og nefnir hann því til stuðnings tölvuskeyti sem barst nýlega frá einum þeirra: „Í gærkvöldi klukkan 21:11 sendi ég tölvuskeyti til þess að panta bláa tunnu fyrir dagblöð og annan pappír. Klukkan 09:15 í morgun var tunnunni rúllað inn stíginn hjá okkur og stillt upp bak við hús. Viðbragðstími: 12:04! Ætli það gerist betra á öðrum bæjum!"
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira