Fundað með Bretum og Norðmönnum 23. október 2008 10:18 Frá fundi íslensku og bresku samninganefndanna í gær. MYND/Stöð 2
Viðræður samninganefnda Íslands og Bretlands vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi héldu áfram í morgun klukkan níu. Ekki liggur fyrir hvernig samningaviðræður ganga eða hvort gengið verði til samninga í dag. Nefndirnar funduðu nánast í allan gærdag en fyrir íslensku samninganefndinni fer Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari. Þá er hingað komin norsk sendinefnd til þess að ræða við íslensk stjórnvöld um efnahagsástandið á Íslandi og til að kanna hvort Norðmenn geti lagt Íslendingum lið. Eftir því sem Vísir kemst næst ræðir hún nú við fulltrúa úr forsætisráðuneytinu. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir á vef forsætisráðuneytisins að koma nefndarinnar sé afar jákvæð „og við bindum vonir við að eiga árangursríkar viðræður við þessa nágranna okkar og frændþjóð."Nefndin mun eiga fundi með fulltrúum íslenskra stjórnvalda í dag og á morgun og ræða meðal annars stöðu efnahagsmála og hugsanlega aðstoð sem íslensk stjórnvöld gætu óskað eftir við norsk stjórnvöld og myndu nýtast til að draga úr áhrifum fjármálakreppunnar. Þá stendur til að undirbúa fund norrænu forsætisráðherranna í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki í næstu viku. Þar verður staðan á Íslandi sérstaklega til umræðu.„Noregur er næsti nágranni Íslands. Samband landanna byggist á traustum grunni, sem er saga þjóðanna og sameiginlegar menningarrætur. Mér þykir afar vænt um þann mikla stuðning sem Norðmenn sýna okkur með því að senda hingað fulltrúa sína og hve þeim er umhugað um að aðstoða okkur í þeim mikla vanda sem við okkur blasir. Það er þakkarvert að takast skyldi að skipuleggja þessa ferð með skömmum fyrirvara," segir Geir . Haarde.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Kristrún ávarpar þingið óvænt Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Hlýnar um helgina Veður Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún ávarpar þingið óvænt Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Sjá meira