Bilun í Hubble frestar leiðangri fram á 2009 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. september 2008 11:22 Atlantis á skotpallinum. Hún er þó ekki að fara neitt í bráð. MYND/Getty Images
Leiðangur geimfara að Hubble-sjónaukanum, sem skjóta átti af stað með geimferjunni Atlantis eftir hálfan mánuð, hefur verið settur á ís fram á næsta ár eftir að óvænt bilun kom upp í sjónaukanum um helgina. Hann hætti að senda myndir til jarðar í kjölfarið. Ástæða frestunarinnar er sú að þjálfa þarf leiðangursmennina til að kljást við þá bilun sem nú er komin upp en ætlunin var að gera allt annað í leiðangrinum. Þá þarf að útvega og senda með leiðangrinum varahluti vegna nýju bilunarinnar en ekki er hlaupið að því þar sem byrja þarf á því að prófa varahlutina á jörðu niðri og veita þeim vottun um að verkun þeirra sé sem skyldi. Flestir varahlutir í sjónaukann eru frá því á 9. áratugnum eins og hann sjálfur. Vararásir síðast í notkun 1990 Geimfararnir sem ætlunin var að senda til Hubble um miðjan október hafa þjálfað sleitulaust í tvö ár fyrir þær fimm geimgöngur sem áætlað var að fara í leiðangrinum. Í hverri þeirra átti að framkvæma ákveðnar viðgerðir og viðhaldsverkefni sem allt er nákvæmlega kortlagt í verklýsingu. Sú bilun sem nú er komin upp krefst þess að ný verkáætlun sé gerð og það tekur einnig tímann sinn. Nú er unnið að því að fá sjónaukann til að skipta yfir á vararás svo hægt sé að nálgast myndefni frá honum áfram. Að sjálfsögðu er þetta einnig flókið verkefni þar sem vararásirnar hafa ekki verið í notkun síðan á árunum í kringum 1990. Næsta áætlaða geimskot er því ferð Endeavour til alþjóðlegu geimstöðvarinnar í nóvember.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira