Erlent

Friðargæsluliðar verða áfram í Darfur

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að framlengja dvöl friðargæsluliða sinna í Darfur héraðinu í Súdan um eitt ár.

Allar þjóðirnar í öryggisráðinu samþykktu tillögu þess efnis að Bandaríkjamönnum undanskildum sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Bandaríkjamenn voru mótfallnir málsgrein í tillögunni sem kveður á um að fresta skuli rannsókn á forseta Súdans fyrir meinta stríðsglæpi hans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×