Innlent

Háskólinn stefnir hátt

Kristín Ingólfsdóttir.
Kristín Ingólfsdóttir.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði við útskrift tæplega 1100 kandídata í dag, að á næstu fimm árum stefndi Háskólinn að því að byggja upp fjögur til sex afburðasvið eða stofnanir, sem tryggt yrði sérstakt fjármagn og grundvöllur til að skara framúr á alþjóðavísu.

Hún sagðist telja mikilvægt að stefnt yrði að því að á minnsta kosti einu þessara sviða yrði Háskólinn í flokki með 10 bestu slíkum stofnunum eða sviðum í heiminum. Markmið skólans er að sækja töluverðan hluta þess fjármagns sem þarf til uppbyggingarinnar til alþjóðlegra styrktarsjóða og fyrirtækja.

Kristín lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegra samstarfssamninga sem Háskóli Íslands hefði gert við margar helstu mennta- og vísindastofnanir í heiminum, stofnanir á borð við Harvard háskóla, Columbia háskóla í New York, Caltech í Kaliforníu, Minnesota háskóla, Fudan háskóla í Kína og Vísindastofnun Indlands.

Kristín sagði í ræðu sinni að það væri hlutverk Háskólans á erfiðum umbrotatímum að taka þátt í að móta framtíð samfélagsins. Grunnstoðir íslensks samfélags, þar á meðal menntakerfið, væru afar traustar og því full ástæða til bjartsýni á framtíðina. Uppbygging af því tagi sem Háskólinn hefði á prjónunum væri mikilvægur þáttur í að hraða uppbyggingu þekkingarsamfélags á Íslandi, sem væri grundvöllur framtíðarhagvaxtar og velferðar.

Aðsókn að Háskóla Íslands eykst mjög hratt milli ára. Þrisvar sinnum fleiri en áður vilja nú læra matvæla- og næringarfræði við skólann. Tvöfalt fleiri en áður vilja nú læra rafmagns- og tölvuverkfræði. Sextíu og fimm prósent fleiri vilja í hagfræði, fjörtíu prósent í lögfræði, fjörtíu og þrjú prósent í umhverfis og byggingarverkfræði og mikil aukning er einnig í sagnfræði og heimspeki og íslensku-og menningardeild.

 

Ræða Kristínar er í fylgiskjali. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×