Háskólinn stefnir hátt 14. júní 2008 15:08 Kristín Ingólfsdóttir.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði við útskrift tæplega 1100 kandídata í dag, að á næstu fimm árum stefndi Háskólinn að því að byggja upp fjögur til sex afburðasvið eða stofnanir, sem tryggt yrði sérstakt fjármagn og grundvöllur til að skara framúr á alþjóðavísu. Hún sagðist telja mikilvægt að stefnt yrði að því að á minnsta kosti einu þessara sviða yrði Háskólinn í flokki með 10 bestu slíkum stofnunum eða sviðum í heiminum. Markmið skólans er að sækja töluverðan hluta þess fjármagns sem þarf til uppbyggingarinnar til alþjóðlegra styrktarsjóða og fyrirtækja. Kristín lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegra samstarfssamninga sem Háskóli Íslands hefði gert við margar helstu mennta- og vísindastofnanir í heiminum, stofnanir á borð við Harvard háskóla, Columbia háskóla í New York, Caltech í Kaliforníu, Minnesota háskóla, Fudan háskóla í Kína og Vísindastofnun Indlands. Kristín sagði í ræðu sinni að það væri hlutverk Háskólans á erfiðum umbrotatímum að taka þátt í að móta framtíð samfélagsins. Grunnstoðir íslensks samfélags, þar á meðal menntakerfið, væru afar traustar og því full ástæða til bjartsýni á framtíðina. Uppbygging af því tagi sem Háskólinn hefði á prjónunum væri mikilvægur þáttur í að hraða uppbyggingu þekkingarsamfélags á Íslandi, sem væri grundvöllur framtíðarhagvaxtar og velferðar. Aðsókn að Háskóla Íslands eykst mjög hratt milli ára. Þrisvar sinnum fleiri en áður vilja nú læra matvæla- og næringarfræði við skólann. Tvöfalt fleiri en áður vilja nú læra rafmagns- og tölvuverkfræði. Sextíu og fimm prósent fleiri vilja í hagfræði, fjörtíu prósent í lögfræði, fjörtíu og þrjú prósent í umhverfis og byggingarverkfræði og mikil aukning er einnig í sagnfræði og heimspeki og íslensku-og menningardeild. Ræða Kristínar er í fylgiskjali.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira