Rætt um óróamenn í Framsókn 5. nóvember 2008 14:07
Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, var spurður að því hvort hann væri eini maðurinn í Framsóknarflokknum sem með viti væri og hvort aðrir væru óróamenn sem vildu vinna flokknum tjón með umræðu um Evrópumál. Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, benti á að Bjarni hefði látið hafa það eftir sér að ESB-trúboð stæði yfir í boði ríkisins og hefði hann þar vísað til orða greiningardeildar Nýja Glitnis. Þá hefði þingmaðurinn einnig sagt að innan fjölmiðla væri því haldið fram að fylgi við ESB-aðild væri meira en raunin væri. Vísaði Gunnar svo til fréttar Vísis í gær af því að meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins væri fylgjandi aðildarviðræðum við ESB og enn fremur í yfirlýsingar kjördæmissambanda Framsóknarflokksins um Evrópumál. Sagði Gunnar Bjarna hafa sagt að óróamenn í flokknum væru að vinna honum tjón í þessum málum og vildi Gunnar vita hvort Bjarni væri þá eini maðurinn með viti í flokknum. Bjarni svaraði því til nú væri skörin farin að færast upp á bekkinn ef Gunnar vildi hafa áhrif á skoðanir í öðrum flokkum. Hann hefði sagt í fjölmiðlum að hann teldi alls ekki að allir innan Framsóknar væru óróamenn. Hann stæði hins vegar við það að ákveðnum fjölmiðlum hefði verið beitt af mikilli óbilgirni gegn formanni flokksins. Bjarni sagðist enn þeirrar skoðunar að Glitnir héldi úr áróðri fyrir ESB-aðild og það hefðu fjölmiðlarnir einnig gert. Í raun og veru væri staðan sú að hún ætti að vera öllum lýðræðissinnum áhyggjuefni, hvort sem þeir aðhylltust ESB eða ekki. Þótt honum þetta ekki merkilegt erindi hjá Gunnari á meðan vinna fjárlaganefndar lægi niðri. Benti hann enn fremur á að skiptar skoðanir væru um Evrópumálum í öllum flokkum, líka Samfylkingunni.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira