Innlent

Kaþólskur prestur hjálpar syrgjandi Pólverjum

Frakkastígur 8
Frakkastígur 8

„Þeir hafa ekki fengið áfallahjálp en kaþólski presturinn í Keflavík hefur rætt við þá,“ segir Sveinn Ingvar Hilmarsson, vinnuveitandi og leigusali Pólverjanna, sem syrgja nú landa sinn sem lést eftir að hafa fengið höfuðáverka í híbýlum mannanna við Frakkastíg fyrir rúmum tveimur vikum.

„Kaþólski presturinn hefur verið erlendis þessa viku en kemur á mánudag. Þá mun hann ræða betur við mennina,“ segir Sveinn Ingvar og bætir við að þeir tveir sem sátu í gæsluvarðhaldi og voru hvað nánastir þeim látna séu ansi illa á sig komnir.

Sveinn Ingvar rekur fyrirtækið HB Innflutningur og leigir tvær efstu hæðirnar á Frakkastíg 8. Þar útvegar hann erlendum verkamönnum húsnæði. Alls dvelja um 25 útlendingar á staðnum í dag í sautján herbergjum. Sveinn segir að lítill hluti mannanna, sem leigja hjá honum, vinni hjá sér.








Tengdar fréttir

Pólverjinn lá í þrettán tíma án hjálpar

Pólverjinn sem lést á Landspítalanum í síðustu viku vegna höfuðáverka, lá í rúmi sínu í þrettán tíma þangað til að hann var fluttur á sjúkrahús. Hann féll í götuna fyrir utan Frakkastíg 8 mánudagskvöldið 9. júní og herma heimildir Vísis að fallið hafi verið hátt, nokkrir metrar. Viku seinna var slökkt á öndunarvélinni og maðurinn, sem var þrítugur að aldri, úrskurðaður látinn.

Maður lést af höfuðáverkum - Mögulegt manndráp á Frakkastíg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort Pólverji, sem lést af höfuðáverkum á sjúkrahúsi á föstudag, hafi verið myrtur. Landi hans, sem heimildir Vísis herma að sé nágranni mannsins, hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfa aðra viku en það rennur út í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×