Erlent

Hvítrússar kjósa í dag

Hvítrússar kjósa til þings í dag. Alexander Lúkasjenkó, forseti landsins, bindur vonir við að framkvæmd kosninganna verði með þeim hætti að þær njóti stuðnings vesturveldanna og verði til að bæta samskipti Hvítrússa við Bandaríkjamenn og Evrópusambandið.

Lúkasjenkó hefur verið við völd í Hvítarússlandi í fjórtán ár. Vesturveldin hafa sakað hann um kosningasvik, ritskoðun og ofsóknir á hendur stjórnarandstæðingum. Kosið er til neðri deildar þingsins í dag. Þar sitja hundrað og tíu þingmenn, sem allir eru stuðningsmenn forsetans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×