Innlent

Bæjarráð fjallar um óánægju íbúa

Hringtorg við fjölbýlishúsið hefur verið umdeilt á meðal íbúa.
Hringtorg við fjölbýlishúsið hefur verið umdeilt á meðal íbúa.

Bæjarráð Kópavogs fjallaði í dag um óánægju íbúa í fjölbýlishúsinu við Lundarbraut 1 vegna nálægðar hússins og nýrrar legu Nýbýlavegar, einkum við suðausturhorn hússins þar sem það nær út í lóðarmörk, næst hringtorginu á mótum Lundarbrautar og Nýbýlavegar.

Bæjarráð fór yfir gögn málsins og athugasemdir sem borist hafa vegna framkvæmdar við Nýbýlaveg. Bæjarráð segir framkvæmdina innan marka gildandi skipulags, í samræmi við hönnunar- og útboðsgögn og ekki nær lóðarmörkum fjölbýlishússins við Lundarbraut 1 en heimilt er.

Þá er segir bæjarráð að ljóst sé að hönnuðir fjölbýlishússins við Lundarbraut 1 hafa staðsett ákveðnar íbúðir í mikilli nálægð við samgöngumannvirkin og það kunni að valda íbúum þar óþægindum.

Ítarleg athugun hefur farið fram á tillögum að færslu vegarins og hringtorgsins fjær fjölbýlishúsinu en tillögurnar þóttu allar rýra gæði umferðarmannvirkja, skila litlum ávinningi og kosta umtalsvert fé.

Bæjarráð tekur hins vegar undir ýmis sjónarmið íbúa sem fram hafa komið. Í ljósi þess leggur bæjarráð Kópavogsbæjar til við framkvæmdaraðila á svæðinu að grípa til ýmissa ráðstafana til að koma til móts við sjónarmið íbúa.

Í fyrsta lagi að BYGG, sem annast framkvæmdir innan Lundarsvæðisins, sjái um að akbrautin, sem liggur upp úr Lundarhverfinu og tengist Nýbýlavegi á hringtorgi, verði færð fjær Lundarbraut 1.

Í öðru lagi að Vegagerðin athugi hvort unnt sé, þrátt fyrir fyrrnefnt óhagræði og kostnað, að minnka hringtorgið svo að norðurbrún Nýbýlavegar færist fjær Lundarbraut 1.

Og í þriðja lagi að framkvæmdaraðilar breyti gönguleiðinni næst húsinu í sama tilgangi og rakinn hefur verið.

Kópavogsbær hefur kynnt viðkomandi framangreindar tillögur bæjarráðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×