Kostnaður við sérsveit eykst um 60 prósent milli 2005 og 2007 21. nóvember 2008 08:47 MYND/GVA
Kostnaður vegna sérsveitar Ríkislögreglustjóra jókst um rúm 60 prósent á milli áranna 2005 og 2007 á meðan verkefnum sveitarinnar fjölgaði aðeins um 17 prósent. Þetta kemur fram í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingkonu Vinstri - grænna. Í svarinu kemur fram að kostnaður við sveitina hafi verið um 256 milljónir króna fyrir þremur árum en hann var orðinn 415 milljónir í fyrra. Á sama tíma fjölgaði verkefnum sveitarinnar úr 4.400 í 5.200, en langflest verkefnin sneru að almennri löggæslu. Í svari dómsmálaráðherra kemur enn fremur fram að 41 lögreglumaður sé í sérsveitinni og að meðalheildarlaun sérsveitarmanns á ári séu 7,4 milljónir króna samanborið við 6,5 milljóna króna meðalheildarlaun allra lögreglumanna. Kolbrún spurði einnig hvernig tími sérsveitarmanna skiptist milli þjálfunar og eiginlegra lögreglustarfa. Í svari ráðherra kom fram að starf sérsveitarinnar skiptist í þrjá þætti, almenn lögreglustörf, sérverkefni og þjálfun. Um 75 prósent eða meira af vinnutíma væri vegna lögregluverkefna og um 25 prósent eða minna vegna þjálfunar.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira