Erlent

Karzai sagður hliðhollur eiturlyfjabarónum

SHA skrifar
Hamid Karzai, forseti Afganistans.
Hamid Karzai, forseti Afganistans.

Forseti Afganistan, Hamid Karzai, er sakaður um að taka ekki nógu fast á eiturlyfjavandamálum landsins af Thomasi Schweich, fyrrverandi sérfræðingi bandaríska utanríkisráðuneytisins.

Í grein í New York Times fullyrðir Thomas að stjórnvöld í Afganistan beinlínis verndi eiturlyfjabaróna. Eiga stærstu eiturlyfjabarónar í suðurhluta landsins að vera með aðalstuðningsmönnum Karzais.

Karzai þvertekur hins vegar fyrir ásakanirnar og segir að stjórnvöldum hafi takist að draga verulega úr eiturlyfjaframleiðslu í landinu. Ekkert annað land í heiminum hefur tekist eins vel í baráttunni gegn eiturlyfjaframleiðslu að sögn Karzais.

Valmúauppskera Afganistan gefur af sér um 90% ópíum heimsins en ópíum er aðalhráefnið í heróíni. Er sala á valmúa talin ein helsta peningauppspretta Talibana sem hafa mjög sótt í sig veðrið á undanförnum misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×