Höfuðpaur TR-máls í þriggja ára fangelsi - helmingur sakborninga í fangelsi 12. júní 2008 09:09
Rannveig Rafnsdóttir, höfuðpaurinn í fjársvikamáli tengdu Tryggingastofnun ríkisins, var í dag dæmd í þriggja ára fangelsi. Rannveig er fyrrverandi þjónustufulltrúi TR og var ákærð fyrir að hafa stolið um 76 milljónum króna úr sjóðum stofnunarinnar á tímabilinu 2. janúar 2002 til 9. júni 2006 og komið til vina og vandamanna.Alls voru 20 ákærðir vegna málsins en þáttur fimm manna hafði áður verið gerður upp. Fimmmenningarnir, sem tengdust konunni á ýmsan hátt, voru dæmdir í tveggja til níu mánaða fangelsi en allir dómarnir voru skilorðsbundnir.Þáttur Rannveigar og fjórtán annarra var gerður upp í dag en Rannveig hafði sjálf játað brot sitt við þingfestingu í héraðsdómi um miðjan mars í fjölmennustu þingfestingu í sögu Héraðsdóms Reykjavíkur.Sem fyrr segir var hún dæmd í þriggja ára fangelsi og til þess að greiða Tryggingastofnun það sem hún tók, hátt í 76 milljónir króna. Af þeim fjórtán sem dæmdir voru í dag voru tveir sýknaðir af aðild að málinu, einum var ekki gerð refsing og refsingu eins var frestað haldi hann skilorð. Flestir aðrir fengu á bilinu þriggja til tólf mánaða fangelsi. Einn fékk þó níu mánaða dóm, þar af sex skilorðsbundna og annar tólf mánuði, þar af níu skilorðsbundna. Þá fékk einn sakborningur tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.Samverkamennirnir nítján, karlar og konur á aldrinum 20 til 54 ára, voru ákærðir fyrir hylmingu en til vara peningaþvætti fyrir að taka á móti fé frá Rannveigu inn á reikninga sína. Fjórir einstaklingar af þeim voru svo ákærðir fyrir hlutdeild í fjársvikum þjónustufulltrúans með því að fá samþykki frá 15 fyrir því að greiðslur sem sviknar voru út úr Tryggingastofnun ríkisins yrðu lagðar inn á bankareikning þeirra.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira