Hagræðir og ræður tugi lögreglumanna 20. desember 2008 06:00 Hópur nýútskrifaðra nemenda úr Lögregluskóla ríkisins hefur sótt um starf á höfuðborgarsvæðinu. Myndin er frá nýafstaðinni útskrift lögregluskólans, þar sem 32 voru brautskráðir. mynd júlíus sigurjónsson
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur auglýst eftir tuttugu og þremur lögreglumönnum til starfa. Mikil hagræðingarvinna hefur farið fram innan embættisins og þrátt fyrir aukinn kostnað, svo og niðurskurð telur hann að dæmið muni ganga upp. Á fimmta tug umsókna hafa borist. Umsóknarfrestur rennur út á Þorláksmessu. Umsóknirnar sem borist hafa eru bæði frá nýútskrifuðum lögreglumönnum svo og þeim sem hafa hug á að snúa aftur til starfa á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra. „Við miðuðum við þær forsendur sem við okkur blasa í fjárlagafrumvarpinu og gerðum okkur grein fyrir því að við þyrftum að skera niður samkvæmt fyrirliggjandi kröfum, svo og út af hallarekstri á þessu ári,“ útskýrir hann. „Það gerum við meðal annars með því að loka afgreiðslu okkar í Borgartúni og flytja leyfamálin, það er afgreiðslu vegabréfa, ökuskírteina og þess háttar, yfir til sýslumannsins í Kópavogi. Það sparar okkur 10-20 milljónir.“ Þá verða gerðar breytingar á fyrirkallsdeildinni, einnig í hagræðingarskyni, að sögn Stefáns. Hún verður lögð niður í núverandi mynd. Starfsmenn og verkefnin færast inn á svæðisstöðvarnar og í almennu deildina. Þar sparast einnig tugir milljóna. „Síðan erum við að hagræða í launamálunum með því að lækka föst kjör yfirmanna og allra sem eru á einhvers konar fastlaunasamningum, um allt að fimm yfirvinnutíma á mánuði. Einnig að draga úr yfirvinnu almennt séð um sama tímafjölda. Það skilar einnig hagræðingu á ársgrundvelli upp á 70 til 80 milljónir. Með þessu móti getum við ráðið inn í þessar rúmlega tutt-ugu stöður um áramótin.“ Stefán segir rekstur lögreglunnar ekkert sérlega auðveldan á þessum erfiðu tímum. „Það er auðvitað ekki séð hver endanleg niðurstaða verður hjá okkur. Við erum ekki komnir með tryggingu fyrir að við getum ráðið allt þetta fólk. En ef við fáum viðurkenningu á fjáraukalögum á þeim aukna kostnaði sem við höfum orðið fyrir á þessu ári, bæði vegna verðlagshækkana og viðbúnaðar vegna náttúruhamfara, mótmælaaðgerða og fleira, þá ætti þetta að smella.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira