Innlent

Ritstjórar DV: Árni brýtur lög

Feðgarnir á DV.
Feðgarnir á DV.

Ritstjórar DV, feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna forsíðufréttar blaðsins um Árni Mathiesen í dag. Árni segir fréttina ranga og vill afsökunarbeiðni frá DV. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingi sagði einnig við Vísi í dag að fréttin væri röng.

Yfirlýsing ritstjóra DV er birt hér í heild sinni en þar fyrir þeðan er hægt að lesa sér nánar til um málið.

"Árni Mathiesen fjármálaráðherra brýtur lög með því að skrá falskt lögheimili á Kirkjuhvoli í Þykkvabæ. Ráðherrann býr ekki á því lögheimili sem hann hefur gefið upp, þar búa pólskir verkamenn. Ráðherrann býr í Hafnarfirði en nýtur hlunninda úr ríkissjóði sem ætluð eru til að greiða kostnað af húsnæði, dvöl og uppihaldi í því kjördæmi sem hann er kosinn á þing fyrir.

Ranghermt er í yfirlýsingu Árna Mathiesen vegna þessa máls að hann njóti ekki styrkja vegna þessa. Hann segist aðeins fá greiðslur vegna ferðalaga og uppihalds. Þetta er rangt eins og má lesa í fyrstu málsgrein 2. greinar laga um þingfararkostnað. Í þeirri grein er fjallað um húsnæðis- og dvalarkostnað. Í þriðju grein laganna er fjallað um ferðakostnað en um það er ekki deilt.

Árni hefur sagt rangt að hann græði á fölsun sinni varðandi lögheimilið í Þykkvabæ. DV fellst ekki á þá málsvörn hans og túlkun. Árni greiðir lægra útsvar í Þykkvabæ en hann myndi gera ef skráning væri rétt og hann réttilega skráður í Hafnarfirði. Hvergi er því haldið fram í DV að hann brjóti lög með því að þiggja dreifbýlisstyrk en hann brýtur lög með rangri skráningu.

Ráðherrann hefur ekki útskýrt af hverju hann greip til þess að falsa skráningu lögheimilis í Þykkvabæ. Þess er krafist að hann skýri ástæður þess að hann fer á svig við lög í landinu með umræddum hætti og hagnast á því. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur hann ekki látið DV ná í sig.

DV hafnar því að biðja ráðherrann afsökunar en krefst þess að hann útskýri sitt mál. Ítarlega verður fjallað um mál ráðherrans í helgarblaði DV á morgun. "


Tengdar fréttir

Árni fær ekki greitt sérstaklega fyrir lögheimili á Kirkjuhvoli

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að frétt sem birtist á forsíðu DV í dag sé efnislega röng. Þar er því haldið fram að Árni hafi fengið tæpa eina milljón króna í greiðslur fyrir að skrá lögheimili sitt á Kirkjuhvoli við Þykkvabæ. Í DV er sagt að Árni þiggi mánaðarlegar greiðslur fyrir að vera með það sem blaðið kallar „rangt lögheimili“, enda hafi Árni aldrei búið í húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×