Hálf sjötugur fjöldamorðingi trúlofast tvítugri stúlku 6. júlí 2008 12:20
Hálf sjötugur franskur fjöldamorðingi, sem gengur undir nafninu Snákurinn og er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti 20 manns víðsvegar um Asíu, hefur trúlofast tvítugri stúlku frá Nepal þar sem hann situr í fangelsi. Snákurinn, sem heitir Charles Sobhraj, afplánar nú lífstíðardóm fyrir morð í Nepal. Hann og unnustan unga, Hihita Biswas, segjast ætla að ganga í hjónaband ef hæstiréttur Nepal lætur Sobhraj lausan. Sobhraj var dæmur fyrir að myrða kanadískan ferðamann í Katmandu árið 1975, en hann flýði þá land og var ekki handtekinn fyrir verknaðinn fyrr en hann sneri aftur til Nepal nærri 30 árum síðar. Í millitíðinni hafði Sobhraj haldið til víða um Asíu og setið í fangelsum í Thailandi og víðar, þar á meðal í nær tuttugu ár í rammgerðu tugthúsi í Delhi á Indlandi vegna þjófnaðarkæru. Sobhraj er af asísku bergi brotinn en er franskur ríkisborgari. Hann hefur viðurkennt að hafa orðið nokkrum Vesturlandsbúum að aldurtila - en jafnan dregið játningar sínar til baka þegar yfirvöld hafa sest að honum. Lögreglan í Afghanistan, Indlandi, Thailandi, Tyrklandi, Nepal, Íran og Hong Kong gruna hann um morð í sínum umdæmum. Það er þó einvörðungu í Nepal sem hann hefur verið dæmdur fyrir morð - og nú gerir kærastan unga, sem var ritari á skrifstofu lögmanna hans í Katmandu, sér vonir um að hann verði látinn laus vegna skorts á sönnunum og þá geti þau farið til Frakklands og gengið þar í heilagt hjónaband. Viðurnefni hans, Snákurinn, á rætur að rekja til þess að Sobhraj er slyngur í að dulbúa sig og komast undan yfirvöldum á dularfullan hátt. Hann hefur meðal annars flúið rammgerð fangelsi fyrir framan nefið á fangavörðum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira