Innlent

Ráðherra segir gjaldeyri fluttan til landsins eftir krókaleiðum

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að gjaldeyrir sé nú fluttur til landsins eftir krókaleiðum. Einar gerði vandann í gjaldeyrisviðskiptum að umræðuefni í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ.

Gjaldeyrisviðskipti hafa verið miklum vandkvæðum bundin undanfarnar vikur og gert sjávarútvegsfyrirtækjum líkt og öðrum mjög erfitt fyrir.

„Það er kunnara en frá þarf að segja að verkefni útgerðarmanna og útflytjenda síðustu daga og vikur hefur verið að tryggja að greiðslur fyrir afurðir bærust hingað til lands og það eftir áður óþekktum leiðum og reyndar alls konar krókaleiðum, sem ég ætla ekki að fjölyrða um," segir Einar K.Guðfinnssson.

„ Þá hafa stjórnvöld lagt sig fram um að greiða fyrir þessum viðskiptum. Seðlabankinn, ráðuneyti, sendiráð og fleiri hafa lagt þar sín lóð á vogarskálarnar. Ég fullyrði að þar hafa allir lagt sig fram og það ber mjög að þakka því ágæta starfsfólki sem hefur átt hlut að máli. Það er ekki við það að sakast að mál hafa þokast alltof hægt áfram".

Einar segir að vandamálið kristallist í því að marga af þessum rembihnútum í gjaldeyrisviðskiptunum hefur einfaldlega ekki verið á okkar valdi að leysa. Þar hafa aðrir tekið ákvarðanir og bókstaflega tekið af okkur völdin.

„Ég veit þetta vel, því sjálfur hef ég haft bein afskipti af þessum málum hvað eftir annað og reynt að beita því afli, því valdi og þeim áhrifum sem ég hef haft mátt til. Þar hef ég meðal annars leitað leiða í gegnum pólitísk sambönd í nágrannalöndum okkar, ekki síst í Bretlandi," segir Einar.

„Ég hef til dæmis átt samtöl við hinn nýja sjávarútvegsráðherra Bretlands, Huw Irranca Davies og aðra áhrifamenn þar ytra. Í þeim hópi vil ég sérstaklega nefna góðvin okkar Austin Mitchell þingmann Grimsbysvæðisins, sem hefur lagt okkur lið af alefli. Sumt af því hefur borið árangur og einstaka leiðir hafa opnast, eins og við þekkjum, en það breytir því ekki að gjaldeyrisviðskiptin eru ekki komin í eðlilegt horf. Því fer enn víðs fjarri."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×