Erlent

Segja haferni hirða lömb í stórum stíl

Óli Tynes skrifar
Haförninn er gríðarlega stór og sterkur fugl.
Haförninn er gríðarlega stór og sterkur fugl.

Skoskir sauðfjárbændur eru æfir yfir endurreisn hafarnarstofnsins í norðvesturhluta landsins. Þeir segja að ernirnir hafi drepið yfir 200 lömb á síðustu tólf mánuðum eða svo.

Þeir segjast sjá framá að eftir nokkur ár verði allt sauðfé horfið úr hlíðunum. Haförninn varð útdauður á þessum slóðum snemma á tuttugustu öld. Árið 1975 var hægt og rólega byrjað að endurreisa stofninn.

Hafernir eru gríðarlega stórir og sterkir fuglar og bændurnir segja að þeir hrifsi með sér veturgamlar kindur eins og ekkert sé.

Þeir sem að endurreisninni standa segjast efast um að ernirnir valdi jafn miklum usla í búfénaði og bændurnir vilja vera láta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×