Tölvunarfræðiprófessor braust inn í samgöngukortakerfi Lundúna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. júní 2008 11:45 Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/AP
Hollenskur tölvunarfræðiprófessor ferðaðist ókeypis um London með almenningssamgöngukerfi borgarinnar alla síðustu viku. Það virðist ef til vill ekki í frásögur færandi en ferðalagið fór fram með þeim hætti að prófessorinn, dr. Bart Jacobs, notaði fartölvu til að afrita svokölluð Mifare-kort samferðarmanna sinna, einfaldlega með því að koma sér fyrir við hliðina á þeim og lesa gögn af kortinu þráðlaust með svipuðum skynjara og þeim sem farþegar bera kortin upp að til að komast inn í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar. Tilgangurinn með athöfnum Jacobs var að sýna fram á hve viðkvæmt þetta kerfi er í raun en sama eða mjög svipað kerfi er notað á mörgum vinnustöðum til aðgangsstýringar. Jacobs er prófessor í hönnun og sannprófun öryggiskerfa sem byggja á hugbúnaði og kennir þau fræði við Tækniháskólann í Eindhoven auk þess sem hann gegnir prófessorsstöðu við Radboud-háskólann í Nijmegen. Breskur sérfræðingur sem London Times ræddi við sagði að ábending Hollendingsins væri þörf. Áður hefðu verið segulrendur á kortunum en nú væru þau einfaldlega borin upp að skynjara sem væri mun síðra í öryggislegu tilliti. Mifare-kortin sem notuð eru í London eru reyndar hönnun hollenska hugbúnaðarframleiðandans NXP og er hálfur milljarður slíkra korta í notkun um gervalla heimsbyggðina. Hollenska ríkisstjórnin fer þegar að ráðum Jacobs og vinnur nú að því að láta breyta öllum aðgangskortum þarlendra ríkisstarfsmanna. CNET greindi frá.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira